Hægt er að skipta öllum vörum sem keyptar voru hjá okkur um jólin. Skiptifrestur er eins lengi og varan er í heilu lagi og í umbúðunum. Vara sem reynist gölluð fæst að sjálfsögðu skipt þó umbúðir vanti.
Komið hefur í ljós að nokkrir kassar úr síðustu sendingu voru með illa saumuðum rúmfötum. Hægt er að fá ný rúmföt í staðin eða Magga saumakona getur lagað þau.
Ný sending með alveg svakalega flottum rúmfötum er væntanleg í byrjun mars á næsta ári fyrir þau ykkar sem vilja kannski bíða með að skipta ef liturinn á jólagjöfinni passar ekki í svefnherbergið.