Við hjá Rúmföt.is elskum góð rúmföt og kappkostum að bjóða viðskiptavinum okkur upp á frábær rúmföt á afar sangjörnu verði. Að fjárfesta í góðum rúmfötum getur bæði gert svefnherbergið fallegra og bætt svefngæðin. Við erum með afar breitt úrval þar sem allir geta fundið eitthvað við hæfi. Hvort sem fólk elskar hágæða silkidamask eða vill langþráða bómullarsatín úr egypskri bómull. Einnig seljum við lúxus kodda og sængur frá einum virtasta sængurframleiðanda í Þýskalandi. Ekki má gleyma handklæðunum sem við látum framleiða fyrir okkur í miklu magni sem hjálpar að halda verðinu niðri.

Nýju rúmfötin voru að lenda. Fengum sex tonn af geggjuðum rúmfötum sem eiga eftir að fylla hillurnar næstu daga. Margt spennandi og alveg svakalega flott. Tvítóna satínrúmfötin koma að þessu sinni í þremur útgáfum. Hvít/grá, hvít/dröppuð og síðan í nýjum lit eðalblá/grá. Ekki má gleyma ólífugrænum 700 þráða og 600 þráða rúmfötum. En þessi litur ásamt mörgum öðrum eru nýir hjá okkur.