Ár hvert ert haldin stærsta textíl kaupstefna í heimi í Frankfurt. Í fyrra heimsótti ég þessa sýningu og fann m.a. Black Forest sængurnar. Frábærar sængur sem eru úr dýrustu og bestu efnum sem völ er á.
Í ár hélt leitin áfram að hinni fullkomnu sæng á viðráðanlegu verði. Því það eru ekki allir sem vilja borga 60-90 þúsund krónur fyrir eina dúnsæng. Til að gera langa sögu mjög stutta þá fann ég þrjá eða fjóra aðila sem geta framleitt vandaðar sængur fyrir sanngjarnt verð og í hæfilegu magni. Stundum á svona sýningum þá vilja framleiðendur bara selja manni heilan gám eða mörg hundruð stykki í fyrstu pöntun. Sem hentar ekki alveg alltaf.
Einnig fann ég mjög flott fyrirtæki sem framleiðir rúmföt úr hör ásamt allskonar ullarteppum og ábreiðum. Engin lágmarskpöntun og mest allt til á lager. Gæðin voru líka í fyrsta flokki. Sem er nú yfirleitt ekki á þessari sýningu. 80% af öllu sem maður sér á sýningunni nær ekki þeim gæðum sem ég er að sækjast eftir.